100 milljóna styrkir í ferðaþjónustuna

Grand Princess við höfn á Akureyri.
Grand Princess við höfn á Akureyri. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Iðnaðarráðuneytið hefur ákveðið að veita 100 milljónum króna af byggðaáætlun 2006-2009 til að styrkja uppbyggingu í ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Styrkirnir skiptast í tvo flokka og er nauðsynlegt að verkefnið sé atvinnuskapandi á viðkomandi svæði.

Flokkarnir eru annars vegar móttökuaðstaða í höfnum fyrir farþega skemmtiferðarskipa, en varið verður 30 milljónum til upplýsingagjafar, fegrunar umhverfis, uppsetningar þjónustuhúss o.fl. hins vegar verður veitt 70 milljónum króna í nýsköpun í ferðaþjónustu. Fénu á að verja til uppbyggingar á nýjum svæðum, þróun á nýrri vöru eða þjónustu er styrkir viðkomandi svæði sem ferðamannastað.

Við mat á umsóknum verður sérstaklega horft til nýsköpunargildis þeirrar vöru eða þjónustu sem sótt er um. Styrkir geta að hámarki náð 50% af heildarkostnaði verkefnisins. Leitað er eftir umsóknum frá klösum í ferðaþjónustu, sveitarfélögum, fyrirtækjum, einstaklingum og félagasamtökum.

Sjá nánar á vef Ferðamálastofu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert