61% vilja innkalla kvótann

mbl.is/Þorkell

Í könnun Markaðs- og miðlarannsókna, MMR þar sem spurt var um afstöðu fólks til fiskveiðiheimilda sögðust 61% svarenda vera hlynntir því að stjórnvöld afturkalli með einum eða öðrum hætti gildandi fiskveiðiheimildir og úthluti þeim að nýju með breyttum reglum.

Aftur á móti voru 20,7% andvígir slíkum hugmyndum og 18,3% sögðust hvorki vera hlynnt né andvíg hugmyndinni. Nokkur munur mældist á afstöðu ólíkra hópa til þess um að stjórnvöld afturkalli með einum eða öðrum hætti gildandi fiskveiðiheimildir og úthluti þeim að nýju með breyttum reglum.

Til dæmis sögðust tæp 74% þeirra sem eru fimmtugir og eldri vera hlynntir hugmyndinni samanborið við 59,2% í aldurshópnum 30-49 ára og 53,9% í aldurshópnum 18-29 ára. Þó ber að líta til þess að í öllum aldurshópunum voru þeir sem sögðust hlynntir hugmyndinni meira en tvöfalt fleiri en þeir sem sögðust henni andvígir.

66,6% þeirra sem búa á höfuðborgarsvæðinu sögðust fylgjandi því að yfirvöld endurskoði úthlutun fiskveiðiheimilda borið saman við 51,9% þeirra sem búa úti á landi. Þá sögðust 16,3% íbúa höfuðborgarsvæðisins vera andvíg hugmyndinni um endurúthlutun fiskveiðiheimilda samanborið við 27,7% íbúa landsbyggðarinnar.

Af þeim sem styðja núverandi ríkisstjórn sögðust 74,3% hlynnt því að stjórnvöld afturkalli með einum eða öðrum hætti gildandi fiskveiðiheimildir og úthluti þeim að nýju með breyttum reglum.

Meðal þeirra sem segjast ekki styðja ríkisstjórnina voru 51,9% sem sögðust fylgjandi endurúthlutun fiskveiðiheimilda en 37,3% þeirra voru því andvíg.

Verulegur munur var á afstöðu svarenda eftir stuðningi þeirra við stjórnmálaflokka (þ.e. hvaða flokka þeir myndu kjósa væri gengið til kosninga nú). Þannig sögðust 35,7% sjálfstæðismanna hlynntir endurúthlutun fiskveiðiheimilda en 47,6% þeirra sögðust andvígir.

54,8% framsóknarmanna sögðust hlynntir endurúthlutun fiskveiðiheimilda en 30,3% þeirra sögðust andvígir.

69% stuðningsfólks Samfylkingarinnar kvaðst fylgjandi endurúthlutun fiskveiðiheimilda en 7,8% þess sagðist andvígt.

Þá voru 76,9% Vinstri grænna hlynntir því að stjórnvöld endurskoði úthlutun fiskveiðiheimilda en 11,5% voru því andvígir.

Könnunin var gerð dagana 11. - 12. febrúar. Um var að ræða síma- og netkönnun meðal 971 einstaklings á aldrinum 18 til 67 ára.

Spurt var, ertu hlynntur eða andvígur því að stjórnvöld afturkalli með einum eða öðrum hætti gildandi fiskveiðiheimildir (kvóta) og úthluti þeim að nýju með breyttum reglum. 82,9% tóku afstöðu til spurningarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert