Auknar líkur á olíu á Drekasvæðinu

Drekasvæðið.
Drekasvæðið. mbl.is/KG

Auknar líkur virðast nú á að olía kunni að finnast á Drekasvæðinu, norðaustur af Íslandi. Nýlegar hljóðbylgjumælingar og endurmat á upplýsingum sem þegar liggja fyrir benda til þess að setlög, svipuð þeim sem finna má á nærliggjandi og jarðfræðilega tengdum olíusvæðum við Noreg og Grænland.  

Mun Orkustofnun kynna  þessar niðurstöður á ráðstefnu American Association of Petroleum Geologists Prospect and Property Expo (APPEX), sem hefst í London á morgun og stendur fram á fimmtudag. 

„Við erum staðráðin í að kanna vel hvort að olía leynist á Drekasvæðinu þrátt fyrir efnahagskreppuna,“ er haft eftir Össuri Skarphéðinssyni, utanríkis- og iðnaðarráðherra, á vefsíðunni Oil and Gas Online. Segir Össur ennfremur að mörg alþjóðleg olíufyrirtæki hafi þegar lýst yfir áhuga á frekari rannsóknum á svæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert