Eykur heimildir til að frysta eignir

Sérstakur saksóknari hefur víðtækar heimildir til að leggja hald á eignir. Samkvæmt lögum þarf þó rannsókn að vera komin í gang og upplýsingar að liggja fyrir sem benda til refsiverðrar háttsemi. Von er á frumvarpi sem kemur til með til að  veita sérstaka saksóknaranum ótvíræðar heimildir til að afla gagna til að flýta fyrir rannsókn sem gæti leitt til þess að hann þyrfti frekar að grípa til haldlagningar.  

Þetta kom fram í máli Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra á Alþingi í dag. Sjá MBL sjónvarp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert