Samdráttur varð í sölu áfengis

Sala áfengis í febrúar dróst saman um 9% miðað við sama mánuð í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR. Samdráttur var í sölu á öllum áfengistegundum. Sala lagerbjórs dróst saman um 8,1%, rauðvíns um 11,2% og hvítvíns um 3,2%.

Samkvæmt upplýsingum ÁTVR má að einhverju leyti rekja þennan samdrátt til hlaupársdags, en hann bar upp á föstudag í fyrra. Það voru því fimm föstudagar í febrúar 2008 á móti fjórum í ár. Ekki er hægt að rekja breytingu á neyslu til 20 ára afmælis bjórsins 1. mars sl. Ef bornir eru saman laugardagurinn 28. febrúar í ár og 1. mars í fyrra er samdrátturinn í sölu 9,7% en samdráttur í sölu bjórs 10,1% Hlutfall bjórs af heildarsölunni er einnig mjög svipað þennan dag eða rétt um 80% af seldu magni.

Alls seldust 1.321 þúsund lítrar af áfengi í febrúar. Lagerbjór var uppistaðan í sölunni eða 1.041 þúsund lítrar. Athygli vekur að samdráttur í sölu á öðrum bjórtegundum er rúm 52%. Sala áfengis í lítrum janúar-febrúar, miðað við sama tíma fyrir ári, jókst um 0,1%, í 2.605 þús. lítra úr 2.603 þús. lítrum. Sala rauðvíns dróst saman um 4,6% en sala lagerbjórs jókst um 1,9%.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert