12 vísað frá landinu

Félagar í Fáfni biðu í Leifsstöð eftir boðsgestum.
Félagar í Fáfni biðu í Leifsstöð eftir boðsgestum. Ljósmynd/Víkurfréttir

Síðdegis í dag höfðu alls 12 félagar í vélhjólasamtökunum Hells Angels og stuðningsklúbbum þeirra verið stöðvaðir við komu þeirra til Keflavíkurflugvallar. Mönnunum var meinuð landganga. Sex þeirra hafa farið úr landi.

Á miðvikudag var tveimur félagsmönnum Hells Angels meinuð landganga og héldu þeir aftur til síns heima daginn eftir.

Tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins hefur farið fram á Keflavíkurflugvelli í gær og í dag samkvæmt ákvörðun dómsmálaráðherra að tillögu ríkislögreglustjóra. Aðildarríki Schengen-samstarfsins grípa til aðgerða af þessu tagi þegar vísbendingar hafa borist um að án þeirra aukist hætta á að vegið sé að öryggi borgara þeirra.

Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra er tilefni þessara aðgerða koma félaga í Hells Angels og stuðningsklúbbum þeirra til landsins í tengslum við veisluhöld sem íslensku vélhjólasamtökin Fafner MC-Iceland (Fáfnir) hafa boðað til á morgun í nýjum höfuðstöðvum sínum í Hafnarfirði.

Lögreglan segir, að Hells Angels-vélhjólasamtökin og stuðningsklúbbar þeirra haldi uppi skipulagðri glæpastarfsemi víða um lönd. Samtökin falli undir þá skilgreiningu sem í gildi er innan Evrópusambandsins um skipulagða glæpastarfsemi. Félagar í samtökunum hafi víða hlotið þunga dóma m.a. fyrir morð og fíkniefnasmygl.

Landamæraeftirlitinu verður haldið áfram á morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert