Framsóknarflokkurinn gagnrýnir ASÍ

Vigdís Hauksdóttir.
Vigdís Hauksdóttir.

Framsóknarflokkurinn gagnrýnir Alþýðusamband Íslands harðlega fyrir að láta starfsmann sambandsins segja sig frá starfinu vegna stjórnmálaþáttöku. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður flokksins tók málið upp á Alþingi fyrr í dag.

Framsóknarflokkurinn sendi nú síðdegis frá sér yfirlýsingu þar sem segir að áratugir séu síðan fólk hafi a.m.k. opinberlega verið beitt þvingunum og misrétti vegna stjórnmálaskoðana enda rétturinn varinn bæði í stjórnarskrá og mannréttindasáttmálum.

„Það skýtur því mjög skökku við að forseti ASÍ, sem er áberandi áhrifamaður í Samfylkingunni skuli neyða starfsmann sambandsins til að segja sig frá starfi, vegna stjórnmálaþátttöku. Er nú illt í efni fyrir hundruð einstaklinga sem taka þátt í sveitarstjórnarmálum og landsmálum um land allt með skilningi og án afskipta vinnuveitenda sinna, þegar sjálfur forseti Alþýðusambandsins hefur gefið það fordæmi að réttmætt sé að segja fólki upp vegna stjórnmálaþátttöku," segir í yfirlýsingunni.

Flokkurinn segir að löng hefð sé fyrir því að forystumenn verkalýðssamtaka séu á sama tíma í framboði og/eða áhrifamenn í stjórnmálaflokkum. „Nöfn eins og Gylfi Arnbjörnsson, Guðmundur Þ. Jónsson, Guðmundur J. Guðmundsson, Björn Jónsson, Snorri Jónsson, Ögmundur Jónasson, Halldór Grönvold, Skúli Thoroddsen, Ásmundur Stefánsson, koma upp í hugann og hægt væri að telja tugi annarra. Vigdís Hauksdóttir taldi að hún væri að fara troðna slóð þegar hún gaf kost á sér til þings fyrir Framsóknarflokkinn. Forseti Alþýðusambandsins ákvað að hún hefði ekki sömu réttindi og aðrir."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert