Fyrsta íslenska virkjunin erlendis í gang

Fyrsta jarðvarmavirkjunin sem íslenskt fyrirtæki sér um að hanna og reisa erlendis er nú komin í fullan rekstur. Um er að ræða 9,3 MW lághitavirkjun sem var hönnuð og reist af íslenska jarðhitafyrirtækinu Enex í verktöku fyrir LaGeo í El Salvador.

Virkjunin framleiðir nú 9,3 MW af raforku á fullum afköstum. Búið er að ljúka öllum keyrsluprófunum og álagsprófum og tekur nú við eins árs ábyrgðartími, samkvæmt upplýsingum Enex.

Samningurinn við LaGeo hljóðaði upp á rúmlega 13 milljónir bandaríkjadala eða um 1,6 milljarða íslenskra króna.

Verktakasamningurinn við jarðhitafélagið LaGeo í El Salvador var alverktökusamningur þar sem hönnun, innkaup á búnaði, verkefnastjórnun og byggingarstjórnun var í höndum Enex. Enex réð verkfræðistofurnar Sertiproi í El Salvador, VGK (nú Mannvit), Rafteikningu og Fjarhitun (nú Verkís) á Íslandi til ráðgjafar og hönnunar á ýmsum þáttum verkefnisins. Enex sá jafnframt um allar prófanir, gangsetningu og þjálfun starfsmanna LaGeo.

Virkjunin er jarðvarmavirkjun sem nýtir lághita til framleiðslu á raforku. Um er að ræða svokallaða tvívökvavirkjun þar sem jarðvökvinn hitar annan vinnsluvökva (isopentan) í lokaðri hringrás. Vinnsluvökvinn sýður við 160°C í varmaskiptum og knýr hverfil til raforkuframleiðslu.

Virkjunin er á Berlin jarðhitasvæðinu í El Salvador en þar eru fyrir tvær hefðbundnar jarðgufuvirkjanir sem framleiða samtals um 100 MW af raforku. Tvívökvavirkjunin nýtir affallsvatn frá gufuskiljum virkjananna og þannig er jarðhitavökvinn nýttur enn frekar áður en honum er dælt niður í jarðlögin að nýju. Vinnsluaðferð þessi er upprunnin í orkuveri HS Orku í Svartsengi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert