Byggingu tónlistarhúss lokið 2011

Búið er að ljúka samningum um fjármögnun tónlistarhússins.
Búið er að ljúka samningum um fjármögnun tónlistarhússins. mbl.is/Rax

Austurhöfn-TR hefur eignast félögin Portus og Situs, sem höfðu með höndum uppbyggingu Tónlistar – og ráðstefnuhússins (TR), ásamt byggingarrétti á allri lóðinni að Austurbakka 2 eftir að samningsskilmálar þar um hafa nú verið undirritaðir af Austurhöfn, NBI hf., skilanefnd Landsbanka Íslands hf., menntamálaráðherra, fjármálaráðherra, borgarstjóra og Nýsi hf.

Með samkomulaginu tekur Austurhöfn við öllum réttindum og skyldum sem fylgja samningum um byggingu og rekstur TR. Áframhaldandi fjármögnun framkvæmdanna hefur jafnframt verið tryggð og er hún hluti af samkomulaginu. Áætlaður kostnaður við að ljúka verkefninu er 14,5 milljarðar króna, að meðtöldum vöxtum á byggingartíma.

Fyrr í vikunni var gengið frá samkomulagi Austurhafnar-TR og ÍAV, Íslenskra aðalverktaka, um verkframkvæmdina allt til loka. Það byggir í aðalatriðum á fyrirliggjandi samningum en tekur á breyttum verktíma, ýmsum viðaukum, sparnaðarmöguleikum og öðrum ráðstöfunum sem nauðsynlegar eru til að tryggja farsæl verklok. Miðað er við að verkinu ljúki í febrúar 2011 og að húsið verði tekið í notkun í apríl það ár, samkvæmt tilkynningu.

Starfsmönnum fjölgað í 300

Um 150 starfsmenn starfa nú við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins, þeim verður nú fjölgað í 200 og í sumar er áætlað að starfsmannafjöldinn verði kominn yfir 300 manns. Gert er ráð fyrir að nú hefjist að nýju vinna við fyrsta áfanga bílakjallara og að lokið verði við hönnun lóðar á næstunni, svo unnt verði að vinna við næsta nágrenni TR sumarið 2010.

Landsbankinn lánar 8 milljarða

Landsbankinn hefur í dag skuldbundið sig til að veita Austurhöfn TR brúarfjármögnun í því skyni að tryggja áframhaldandi framkvæmdir við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins. 

Jafnframt því hafa Landsbankinn, Íslandsbanki hf. og Nýi Kaupþing banki hf. í dag komið sér saman um lánveitingu til verkefnisins að fjárhæð 14,5 milljarða króna, en sú fjárhæð mun duga til að ljúka byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins miðað við fyrirliggjandi áætlanir Austurhafnar TR.  Hlutdeild Landsbankans í lánsfjárhæðinni nemur nærri 8 milljörðum króna, en auk þessa mun bankinn veita margvíslega fyrirgreiðslu vegna verkframkvæmdanna, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert