Fréttaskýring: Fylgistap kostar flokkana milljónir

Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur ekki úr jafnmiklu að spila og forverinn. …
Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur ekki úr jafnmiklu að spila og forverinn. Þingmönnum flokksins fækkaði um níu. Fjárframlag hins opinbera til flokksins lækkar að sama skapi um tæp 13%. mbl.si/Ómar

„Menn sitja uppi með skuldir,“ segir Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, spurður um skuldastöðu flokksins nú þegar hann hefur misst þingmenn sína. Flokkurinn hefði aðeins þurft 0,3% atkvæða til viðbótar við þau 2,2%, sem hann hlaut í kosningunum á laugardag, til að njóta framlaga ríkis og sveitarstjórna um næstu áramót.

Framlögunum er úthlutað árlega til starfsemi stjórnmálasamtaka sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn á Alþingi eða hafa hlotið a.m.k. 2,5% atkvæða í alþingiskosningum. Upphæðinni, sem ákveðin er á fjárlögum hverju sinni, er úthlutað í hlutfalli við atkvæðamagn. Um síðustu áramót nam hún 371,5 milljónum króna.

Sjálfstæðisflokkur tapar miklu

Hvorki Samfylkingin né Framsóknarflokkurinn þurfa að hafa áhyggjur af fjárframlaginu til sín. Hvor flokkur fær hlutfallslega um 3% meira af úthlutaðri upphæð en þeirri síðustu. Vinstrihreyfingin – grænt framboð jók fylgið um 7,2% sem eykur einnig þeirra hlut. Fylgi Sjálfstæðisflokksins lækkaði hins vegar um 12,9% milli kosninga. Flokkurinn hafði 26 þingmenn en þeir verða nú sextán. Hann fékk um síðustu áramót tæpar 136 milljónir króna en missir þrettán prósentustig af þeirri upphæð sem næst verður úthlutað af. Verði hún sú sama og nú má því áætla að upphæðin til flokksins verði um 90 milljónir króna og lækki því um 46 milljónir króna.

Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, segir 371,5 milljónirnar ekki það eina sem flokkarnir fái. Þingflokkar skipti einnig á milli sín 65 milljónum króna af fjárlögum þingsins. Þær skiptast eftir þingmannafjölda auk þess sem flokkurinn sjálfur telji eina einingu. Greitt sé ársfjórðungslega út. Sjálfstæðisflokkurinn fái því tvær greiðslur samkvæmt gamla þingmannafjöldanum og tvær samkvæmt þeim nýja. Það þýði að flokkurinn fái gróflega reiknað um fimm milljónum króna lægri upphæð á árinu en hefði hann haldið sama þingmannafjölda og tíu milljónum króna minna á næsta ári.

Samkvæmt þessu og með þeim fyrirvara að upphæðin til skiptanna verði sú sama og er í ár verður flokkurinn af 56 milljónum króna á næsta ári í framlögum frá ríki og sveitarfélögum.

Frjálslyndir greiða úr skuldum

Í árslok 2007 skuldaði Frjálslyndi flokkurinn tæpar 30 milljónir króna, en Guðjón segir að við síðustu áramót hafi flokkurinn verið skuldlaus og skuldirnar nú því þær sem stofnað var til í þessari kosningabaráttu. „Við skuldum kosningabaráttuna. Við fengum ekki mikla styrki og höfum ekki fengið svör frá öllum þeim sem við sendum styrkbeiðni til.“ Stundum berist styrkir eftir kosningar. Því sé ekki ljóst hver skuldin verði eftir þessa baráttu.

Hefði Frjálslyndi flokkurinn fengið 0,3% fleiri atkvæði og upphæðin til skiptanna hefði verið sú sama rynnu rúmar níu milljónir til þeirra.

Fær 32,5 milljónir

Alls kusu 13.519 Borgarahreyfinguna í kosningunum á laugardag sem gera 7,2% á landsvísu. Flokkurinn fékk fjóra þingmenn kjörna. Í viðtali við forsvarsmenn flokkanna á RÚV sagði Jóhann Kristjánsson, kosningastjóri hreyfingarinnar, frá því að kosningabarátta flokksins hefði kostað um 1,5 milljónir króna.

Með lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra á Borgarahreyfingin nú rétt á fjárframlagi frá hinu opinbera um næstu áramót. Fjárhæðin ákveðst á fjárlögum en verði hún sú sama og síðasta ár, 371,5 milljónir króna, má gera ráð fyrir því að hreyfingin fái tæpar 27,5 milljónir króna. Auk þess fær hún úthlutað fé frá skrifstofu Alþingis og verði sú heildarupphæð sem skiptist á milli flokkanna 65 milljónir króna á næsta ári eins og í ár, fær flokkurinn tæpar 5 milljónir króna á næsta ári þar, 2,5 tryggar á þessu ári.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert