Losunarmörk á jarðvarmavirkjanir

Hellisheiðarvirkjun að kvöldlagi.
Hellisheiðarvirkjun að kvöldlagi. Rax / Ragnar Axelsson

Umhverfisráðuneytið lítur alvarlegum augum mengun af völdum brennisteinsvetnis á höfuðborgarsvæðinu og hefur haft hana til sérstakrar skoðunar undanfarna mánuði. Unnið er að nýrri reglugerð í ráðuneytinu um losun brennisteinsvetnis, og er gert ráð fyrir að í henni verði kveðið á um hámarkslosunarmörk frá jarðvarmavirkjunum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá umhverfisráðuneytinu.

Sagt hefur verið frá því í fréttum að undanförnu að mengun af þessu tagi hafi undanfarið mælst meiri en áður og að líklegt sé talið að hún komi frá Hellisheiðarvirkjun.

„Þá hefur ráðherra lagt til að mælistöðvum sem mæla brennisteinsmengun á höfuðborgarsvæðinu verði fjölgað. Þar að auki hefur ráðherra falið Umhverfisstofnun að finna leiðir til að draga úr styrk brennisteinsvetnis á höfuðborgarsvæðinu svo hratt sem nokkur kostur er. Í því augnamiði hefur Umhverfisstofnun efnt til reglulegra samráðsfunda með Orkuveitu Reykjavíkur, Vinnueftirliti ríkisins og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Í tengslum við það samráð hefur Orkuveita Reykjavíkur unnið viðbragðsáætlun um aðgerðir ef styrkur brennisteinsvetnis fer yfir ákveðin mörk.

Til viðbótar við mælingar Umhverfisstofnunar í Norðlingaholti í Reykjavík og í Hveragerði hefur Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gert kröfu á Orkuveitu Reykjavíkur um uppsetningu á föstum mælistöðvum í Hveragerði, við Hellisheiðavirkjun og austarlega í Reykjavík. Farið var fram á að stöðvarnar yrðu teknar í notkun eigi síðar en 1. apríl síðastliðinn en síðan hefur sá frestur verið framlengdur og stefnt er að því að mælistöðvarnar verði teknar í notkun í sumar.

Rétt er að geta þess að Umhverfisstofnun hefur ekki formlega aðkomu að málefnum Hellisheiðarvirkjunar þar sem Heilbrigðisnefnd Suðurlands veitir starfsleyfið og hefur eftirlit með starfseminni eins og kveðið er á um í lögum. Ráðuneytið hefur nú til skoðunar hvort rétt sé að huga að lagabreytingum í þessu sambandi,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert