73 ára gömul hagfræðibók kjörgripur mánaðarins

Teikning af John Maynard Keynes höfundi Altækrar kenningarum atvinnu, vexti …
Teikning af John Maynard Keynes höfundi Altækrar kenningarum atvinnu, vexti og peninga.

Bók breska hagfræðinginn John Maynard Keynes, Altæka kenningin um atvinnu, vexti og peninga frá árinu 1936, er kjörgripur mánaðarins hjá Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafni.

Í fréttatilkynningu frá safninu er rifjað upp að í kjölfar heimskreppunnar á fjórða áratug síðustu aldar hafi atvinnuleysi verið mikið á Vesturlöndum. Milljónir manna gengið atvinnulausar og örbirgð verið mikil.

„Stjórnvöld gripu víða til aðgerða til að skapa atvinnu en forseti Bandaríkjanna, Franklin D. Roosevelt, var þar fremstur í flokki. Hann innleiddi nýja efnahagsstefnu, „nýja sátt“ (New Deal), sem fólst í miklum framkvæmdum á vegum hins opinbera og félagslegum umbótum sem tryggðu mönnum lágmarkslaun og rétt til félagslegrar aðstoðar. 

Innan hagfræði voru miklar deilur um ástæður kreppunnar og lausnir á henni. Árið 1936 var gefin út bók sem olli straumhvörfum í nútíma hagfræði og hugmyndum um hvernig leysa má kreppur auðvaldsríkja. Þetta var bókin Altæka kenningin um atvinnu, vexti og peninga eftir breska hagfræðinginn  John Maynard Keynes.

Bókin var gagnrýni á ríkjandi rétttrúnaðarhagfræði þess tíma. Keynes hélt því fram að koma mætti hjólum atvinnulífsins af stað að nýju með því að skapa jákvæðar væntingar meðal fjárfesta.

Hann færði rök fyrir því að jákvæðar væntingar mætti laða fram með því að auka almenna spurn eftir vörum í hagkerfinu, auka framkvæmdir hins opinbera, lækka vexti og auka peningamagn í umferð.  Bókin lagði grunninn að efnahagsstefnu Keynesismans sem flestar ríkisstjórnir á Vesturlöndum aðhylltust á seinni hluta 20. aldar, segir m.a. í frétt á vef bókasafnsins. 

 Árið 1961 þýddi Haraldur Jóhannsson hagfræðingur mikilvægustu kaflana úr bók Keynes og skrifaði inngang að henni.

John Maynard Keynes
John Maynard Keynes
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert