Mikil þörf á fjármálaráðgjöf

„Að sjálfsögðu er þörfin mikil,“ segir Ásta S. Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, varðandi þörf almennings á fjármálaráðgjöf í núverandi efnahagsástandi. Fólk á öllum aldri þurfi á aðstoð að halda. Ný starfsstöð ráðgjafarstofunnar var opnuð í Sóltúni 26 í Reykjavík í dag.

„Meginmarkmiðið er að ná niður biðlistum og að fólk geti fengið aðstoð sem allra fyrst,“segir Ásta í samtali við mbl.is.

„Ég hef fundið fyrir því -  bara núna í morgun - að fólk er mjög þakklátt og ánægt að geta komið hingað. Mér finnst að þessi fyrsti hálfi dagur lofi mjög góðu.“

Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að efla eigi Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna til að stytta biðtíma eftir viðtölum. Starfsstöðin í Sóltúni er sett á laggirnar tímabundið en lagt verður reglubundið mat á þörf fyrir áframhaldandi starfsemi.

Ráðgjafarstofan er einnig til húsa að Hverfisgötu 6.

Heimasíða Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert