Dalai Lama í heimsókn

Látlaus móttökuathöfn fór fram á Hilton hóteli í kvöld.
Látlaus móttökuathöfn fór fram á Hilton hóteli í kvöld. mbl.is/Kristinn

Dalai Lama, trúarleiðtogi Tíbeta, kom í kvöld til Íslands og mun dvelja hér á landi næstu dagana. Hann kom frá Kaupmannahöfn í kvöld og mun á morgun tala þátt í friðarstund í Hallgrímskirkju í boði biskups Íslands.

Látlaus móttökuathöfn var á Hilton hóteli í kvöld þegar Dalai Lama kom þangað. Um tveir tugir manna tóku þar á móti trúarleiðtoganum.

Þetta er í fyrsta skipti sem Dalai Lama heimsækir Ísland en hann hefur heimsótt fjölda landa undanfarin 50 ár, ýmist sem gestur trúfélaga, ríkisstjórna eða í boði einkaaðila.

Athöfnin í Hallgrímskirkju hefst klukkan 15 á morgun og verður opin almenningi.

Dalai Lama mun einnig halda fyrirlestur í Laugardalshöll þann 2. júní kl. 15 þar sem hann fjallar um lífsgildi, viðhorf og leiðir til lífshamingju ásamt því að svara fyrirspurnum.

Félagið Dalai Lama á Íslandi stendur fyrir heimsókninni og hefur séð um allan undirbúning hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert