„Óttast hrikalegar uppsagnir framundan“

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands. mbl.is/Ómar

„Ég óttast að það verði hrikalegar uppsagnir framundan ef svo heldur fram sem horfir,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.

Vinnuhópar ASÍ héldu áfram störfum í gær en ekki hefur verið fundað með Samtökum atvinnulífsins síðan á föstudag þar sem beðið er m.a. tíðinda um vaxtastefnu Seðlabankans.

Að sögn Gylfa var í gær fyrst og fremst unnið að því að fá yfirlit yfir framkvæmdastöðu Landsvirkjunar, hitaveitnanna, Vegagerðarinnar og sveitarfélaganna.

„Við erum að reyna að átta okkur á því hvert er umfang framkvæmdastigs og hverjir möguleikar eru á því að stokka upp, ýta mannaflsfrekum framkvæmdum framar og seinka fjármagnsfrekum. En það verður að viðurkennast að staðan er ákaflega dapurleg, það er nánast alkul á þeim vettvangi og ber allt að sama brunni því aðgerðir eru í stoppi vegna þessarar vaxtastefnu.“

5% vextir sem allra fyrst

Gylfi segist ekki vilja nefna ákveðna vaxtatölu sem þá einu ásættanlegu en segir fyrst og fremst nauðsynlegt að vaxtastefnunni í heild sé breytt. „Ég held að greinargerð Seðlabankans skipti ekki síður máli en ákvörðunin sjálf. Á hvaða vegferð erum við? Ef hún felur ekki í sér að innan fárra mánaða verði vextir komnir niður í 5% þá eru það mikil vonbrigði.“
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert