Eldsneyti hækkar

Olíufélög hafa nú öll hækkað verð á eldsneyti og fetað þannig í fótspor Skeljungs, sem hækkaði verð á bensínlítra um 6 krónur á miðvikudag og verð á dísilolíulítra um 4 krónur.

Algengt verð í sjálfsafgreiðslu hjá stóru olíufélögunum þremur er nú  174,80 krónur á lítra af bensíni og 175,70 krónur á dísilolíulítra. Hjá Orkunni kostar bensínlítrinn   173,20 krónur og dísilolíulítrinn 174 krónur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert