Rauðri málningu skvett á hús auðmanna

Rauðri málningu var einnig skvett á Stjórnarráðið í mótmælum fyrr …
Rauðri málningu var einnig skvett á Stjórnarráðið í mótmælum fyrr á árinu. mbl.is

Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu barst í morgun tilkynning um skvett hefði verið rauðri málningu á hús Björgólfs Guðmundssonar og Hannesar Smárasonar. Ekki er vitað hverjir voru að verki eða hvað þeim gekk til. Þá er ekki vitað hvenær verknaðurinn átti sér stað.

Engin skilaboð voru skrifuð með málningunni heldur var henni einungis skvett á veggi húsanna. Að sögn lögreglu er þetta ekki í fyrsta skiptið sem þetta er gert.

Lögregla segist ekki hafa neinn grunaðan um verknaðinn en málið sé í rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert