Ökumaður missti meðvitund

mbl.is/Július

Ökumaður slapp ótrúlega vel þegar jeppabifreið hans fór út af Reykjanesbrautinni við Vatnsleysustrandarveg í morgun og stöðvaðist um 20 metra frá veginum. Tilkynning um óhappið barst kl 7.20 í morgun. Talið er líklegt að liðið hafi yfir ökumanninn.

Ökumaðurinn var einn í bílnum og slapp við meiðsli. Jeppinn skemmdist við óhappið. Meðal annars sprakk dekk og einhverjar skemmdir urðu á undirvagninum.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert