Stakk af frá umferðaróhappi

Hjólið hafnaði á vegriði og skemmdist talsvert. Ökumann þess sakaði …
Hjólið hafnaði á vegriði og skemmdist talsvert. Ökumann þess sakaði ekki. PSP

Enginn slasaðist þegar mótorhjól og bíll rákust á við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar á níunda tímanum í kvöld. Mótorhjólið hafnaði á vegriði og skemmdist töluvert. Bílnum var ekið af vettvangi án þess að ökumaður hans hugaði að líðan ekils hjólsins.

Um er að ræða stóran 7 manna fólksbíl, dökkbláan með skyggðum rúðum að aftan. Að sögn lögreglu er bíllinn sennilega eitthvað skrámaður á hægri hlið eftir hjólið.

Þeir sem vitni urðu að atburðinum og geta veitt upplýsingar um bílinn eða ökumann hans eru beðnir að hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma 444-1100.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert