Flogið beint til Brussel

Birkir Hólm Guðnason framkvæmdastjóri Icelandair.
Birkir Hólm Guðnason framkvæmdastjóri Icelandair. mbl.is

Icelandair mun hefja beint áætlunarflug til Brussel í júníbyrjun 2010. Gert er ráð fyrir tveimur flugum á viku, á mánudögum og föstudögum. Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, segir í fréttatilkynningu að flugið til Brussel hafi verið í undirbúningi um nokkurt skeið.

„Við höfum í gegnum tíðina oft kannað möguleika á flugi til og frá Brussel, m.a. vegna þess hve mikil viðskipta- og stjórnsýslumiðstöð borgin er. Í vor og sumar höfum við átt viðræður við yfirvöld og væntanlega samstarfsaðila í Brussel.

Aukin samgangur milli Íslands og Brussel gefur tilefni og tækifæri til að hefja flugið. Almennir ferðamenn munu þó vissulega bera flugleiðina uppi, bæði þeir sem eru á leið til og frá Íslandi, en einnig þeir sem eru að ferðast milli Brussel og áfangastaða okkar í Bandaríkjunum og Kanada," segir Birkir Hólm, í tilkynningu. Icelandair flýgur til samtals 25 áfangastaða, 18 í Evrópu og 7 í Norður-Ameríku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert