Mótmælendur handteknir

Heiðar Kristjánsson

Til átaka hefur komið á milli lögreglu og mótmælenda við lögreglustöðina við Hlemm, en um 30 manna hópur hefur safnast þar saman. Einhverjir hafa verið handteknir. Fólkið hefur slegið í dósir og verið með hávaða. Þá hefur það reynt að komast inn í portið sem liggur við Snorrabraut.

Þegar hæst stóð í kvöld varð lögregla að beita kylfum til að varna fólkinu inngöngu við hliðið inn á bílastæði lögreglunnar. Voru þá amk. tveir mótmælendur teknir höndum.

Í dag voru fimm mótmælendur, sem tengjast samtökunum Saving Iceland, handteknir við iðnaðarráðuneytið. Þar var grænu skyri skvett á ráðuneytið og bíl ráðherrans og ráðist á lögreglumenn. 

Fólkið hefur verið í skýrslutöku í kvöld.

Frá átökum lögreglu við mótmælendur í kvöld.
Frá átökum lögreglu við mótmælendur í kvöld. mbl.is/Jakob Fannar
Heiðar Kristjánsson
Heiðar Kristjánsson
Heiðar Kristjánsson
Heiðar Kristjánsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert