Boða samstöðufund á Austurvelli

Icesave mótmælt við Alþingi
Icesave mótmælt við Alþingi Eggert Jóhannesson

Samtökin InDefence boða til samstöðufundar á Austurvelli á fimmtudag klukkan 17. Segir í tilkynningu frá samtökunum að Íslendingar á öllum aldri eru hvattir til þess að mæta og sýna samhug í verki. Meðal þátttakenda verða þjóðþekktir einstaklingar og landsþekkt tónlistarfólk.

Á bloggvef Axels Þórs Kolbeinssonar kemur fram að hópurinn Börn Íslands hafa hætt við að mótmælafund á morgun og  fylkja sér í staðin með InDefence og fleiri hópum  fimmtudaginn 13. ágúst frá kl. 17:00 - 18:00.

Sjá nánar á bloggvef Axels Þórs

Sjá vef InDefence

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert