Stórskaðar hagsmuni Íslands

Formaður Sjálfstæðisflokksins sakar ríkisstjórnina um að stórskaða hagsmuni Íslands með því að viðurkenna ekki að fyrirvarar meirihluta fjárlaganefndar við Icesave-samninginn gerbreyti samningnum.

Í máli fjármálaráðherra kom fram að Bretar og Hollendingar fylgdust grannt með því sem hér væri rætt og skrifað.og það dytti engum manni í hug að Íslendingar kæmust upp með blekkingar. Hann fagnaði því að formaður Sjálfstæðisflokksins væri sammála honum í því að það væri mikilvægt að túlka breytingartillögurnar varlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert