Ólafur Ragnar enn á sjúkrahúsi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. mbl.is/RAX

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er enn á sjúkrahúsi en forsetinn féll af hestbaki í gærkvöld og brotnaði á vinstri öxl.

Ólafur Ragnar féll af hestbaki þar sem hann var í hestaferð ásamt eiginkonu sinni og fleirum í Húnaþingi. Hestur hans hrasaði og forsetinn féll af baki. Hann var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur.

Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan hans.

Þetta er í annað skipti sem Ólafur Ragnar slasast í hestaferð frá því hann tók við forsetaembættinu. Fyrir réttum áratug axlarbrotnaði Ólafur Ragnar á vinstri öxl þegar hann féll af hestbaki í Landsveit. Hann var þá fluttur með þyrlu til Reykjavíkur á sjúkrahús.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert