ASÍ: Bregðast þarf við vanda heimilanna

Þeim fjölgar hratt sem ekki sjá framá að geta staðið …
Þeim fjölgar hratt sem ekki sjá framá að geta staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar. Ásdís Ásgeirsdóttir

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands segir að ríkisstjórnin verði að bregðast strax við vanda heimilanna. Sífellt fleiri geti ekki staðið við skuldbindingar sína og á sama tíma og skuldir heimilla aukist þá fari kaupmáttur minnkandi. Þetta kemur fram í ályktun frá miðstjórn ASÍ.

„Vandi heimilanna vex hröðum skrefum dag frá degi. Staða þeirra sem komin eru í greiðsluvanda fer stöðugt versnandi og þeim fjölgar hratt sem ekki sjá framá að geta staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar.

Að óbreyttu mun ástandið aðeins versna næstu mánuði ekki síst í ljósi þess að á sama tíma og skuldir vaxa ört fer kaupmáttur minnkandi. Undanfarna mánuði hefur þessi aðkallandi vandi , sem snýr ekki síst að almennu launafólki í landinu, fengið litla athygli stjórnvalda. Það er með öllu ósættanlegt.

Fyrir liggur að þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til af hálfu stjórnvalda og fjármálastofnana duga engan veginn til að mæta þeim vanda sem við blasir. Alþýðusambandið hefur margoft bent á að þær væru alltof seinvirkar, ómarkvissar og skiluðu mjög takmörkuðum árangri. ASÍ hefur ítrekað krafist úrbóta.

Ríkisstjórnin verður að bregðast strax við og koma með raunhæfar og virkar aðgerðir til að létta skulda- og greiðslubyrði heimilanna áður en fólk missir alla von um mannsæmandi afkomu á næstu árum. Alþýðusambandið leggur áherslu á að allar leiðir til lausnar fjárhagsvanda heimilanna verði skoðaðar og lýsir sig reiðubúið til að taka þátt í þeirri vinnu," að því er segir í ályktun miðstjórnar ASÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert