Afstaða til kaupa Magma liggur fyrir á morgun

Steingrímur J. Sigfúson, fjármálaráðherra segir að afstaða fjármálaráðuneytisins til kaupa Magma Energy á hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS orku muni liggja fyrir í kvöld eða fyrramálið samkvæmt fréttum Stöðvar 2.

Guðlaugur Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, sagði fyrr í dag að ákvörðun í málinu verði tekin á morgun en þá rennur út tilboð Magma í þriðjungs hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert