Flokksráð VG vill afnám verðtryggingar sem fyrst

Vinstri græn
Vinstri græn mbl.is/Árni Sæberg

Þótt samþykkt hafi verið á landsfundi Vinstri Grænna í vetur að semja áætlun um hvernig afnema ætti verðtryggingu lána er sú vinna enn ekki farin í gang. Á flokksráðsfundi um síðastliðna helgi var samþykkt ályktun þar sem því er beint til ríkisstjórnarinnar að verðtrygging lána verði afnumin hið fyrsta.

„Á landsfundinum var rætt um að fela fjármálaráðherra að láta semja áætlun um afnám verðtryggingar lána,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna.

Aðspurð segir hún að enn sé ekki búið að skipa vinnuhóp. „Það er verið að ræða það meðal stjórnarliða á þingi að efnahags- og skattanefnd taki þetta mál sérstaklega fyrir. Það er verið að þrýsta á að farið verði út í þessa vinnu sem fyrst. Ég hef bent á að nefndin sem taka á á skuldavanda heimilanna og ég sit í dugi ekki til,“ segir Lilja.

Hún tekur það fram að ekki sé hægt að aflétta gjaldeyrishöftum nema afnám verðtryggingar komi til.

Lilja leggur til að vextir á fasteignalánum verði fastir í fimm ár þegar verðtrygging hefur verið afnumin. „Ég tók húsnæðislán í Svíþjóð upp úr 2000. Þar voru vextir fastir í fimm ár. Gert var ráð fyrir verðbólgu á tímabilinu og samkomulag var gert um hvaða nafnvextir væru ásættanlegir. Þá er áhættunni deilt meira milli lánveitanda og lántakanda. Ef vextirnir breytast daglega yrðum við í sama kerfinu sem tryggir bara lánveitendur gagnvart verðbólgu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert