Jón Daníelsson: Bjartsýnni en áður

Jón Daníelsson hagfræðingur hjá London School of Econmics
Jón Daníelsson hagfræðingur hjá London School of Econmics Valdís Þórðardóttir

Jón Daníelsson, hagfræðingur, segist vera mun bjartsýnni en áður um stöðu mála á Íslandi. Hann segir að á meðan Icesave-málið var óleyst þá hafi ekkert verið hægt að gera. Hins vegar telji hann að samkomulagið sé mjög slæmt og að hann hefði kosið gegn því ef hann væri á þingi.

Hann segir hins vegar að mesta vandamálið sé þau gjaldeyrishöft sem hér ríki. Mestu mistökin sem gerð hafi verið hér sé setning þeirra. Þetta kom fram í Silfri Egils í dag.

Gjaldeyrishöftin haldi til að mynda ekki og auk þess þá komi þau í veg fyrir að útlendir fjárfestar setji fjármuni í íslenskt atvinnulíf. Jón segir að það besta sem Seðlabankinn geti gert í fyrramálið sé að viðurkenna það að gjaldeyrishöftin hafi verið mistök og taka þau af.

Jón segir ljóst að Ísland hafi ekki efni á því að eyða þeim peningum sem ríkið fær að láni hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og norrænu ríkjunum. Það sé glórulaust að taka lán sem þjóðin getur ekki eytt út af gjaldeyrishöftunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert