Háskólanám forréttindi ríkra

„Við fáum fjölda kvartana frá nemum sem nú eru að vakna upp við vondan draum. Okkur er ætlað að draga fram lífið á fjárhæðum sem eru ekki nema hluti af því sem einstaklingur á atvinnuleysisbótum fær í hverjum mánuði. Ég vænti þess að Umboðsmaður taki málið til skoðunar því að óbreyttu stefnir allt í að háskólanám verði forréttindi hinna ríku,“ segir Arnþór Gíslason, stjórnmálafræðinemi í Háskóla Íslands og fulltrúi í stúdentaráði.

Arnþór hefur ákveðið að senda Umboðsmanni Alþingis kvörtun vegna úthlutunarreglna LÍN. 

„Framfærslugrunnur LÍN byggir á of gömlum útreikningum, sem haldast ekki í hendur við vísitölu neysluverðs. Þar af leiðandi duga námslánin ekki fyrir þeim útgjöldum sem framfærslugrunnurinn gerir ráð fyrir. Ég tel að LÍN uppfylli ekki hlutverk sitt að tryggja öllum tækifæri til náms án tillits til efnahags,“ segir Arnþór.

Þann 11. júní sl. samþykkti stjórn LÍN nýjar úthlutunarreglur fyrir skólaárið 2009-10. Arnþór telur að stjórn LÍN hafi þá brotið rannsóknarreglu Stjórnsýslulaga, en í henni segir að stjórnvald skuli sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því.

Arnþór segir að við þessa ákvörðun hafi LÍN stuðst við upplýsingar um tekjur tæplega tvö þúsund einstaklinga frá árinu 2006. Árið 2008 hafi yfir 10.000 námsmenn hins vegar verið með opið skuldabréf hjá LÍN  og sjóðurinn því með nýrri upplýsingar en stuðst var við.

„Ef Lánasjóður Íslenskra námsmanna hefur upplýsingar um tekjur allra námsmanna frá síðasta ári en notfærir sér eldri upplýsingar frá minna úrtaki við útreikninga á tekjuskerðingu námsmanna þegar kemur að framfærslugrunninum, þá er það brot á rannsóknarreglu Stjórnsýslulaga að mínu mati,“ segir Arnþór Gíslason.

„Framfærslugrunnur LÍN gerir ekki ráð fyrir neinni hækkun á ársútgjöldum einstaklinga þrátt fyrir að vístala neysluverðs hafi á tímabilinu 1. maí 2008 til 1. maí 2009 hækkað um 11.60%,“ segir Arnþór.

Hann segir óhætt að fullyrða að miklar breytingar hafi orðið á tekjum námsmanna á umræddu tímabili. Við versnandi efnahagsástand á Íslandi hafi námsmenn auk þess glímt við stóraukið atvinnuleysi og í sumar hafi menntamálaráðherra komið á sumarönnum í Háskóla Íslands vegna atvinnuleysis meðal námsmanna.

Arnþór Gíslason
Arnþór Gíslason
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert