Alvarlegar ásakanir á hendur kjötiðnaði og verslun

Samtök iðnaðarins segja að Þórarinn Jónsson, bóndi á Hálsi í Kjós, hljóti að geta fært rök fyrir þeim fullyrðingum sínum að víða sé þyngdaraukandi og vatnsbindandi efnum blandað í nautahakk. Geti hann það ekki, eigi hann umsvifalaust að draga orð sín til baka.

Samtök iðnaðarins hafa sent frá sér athugasemd vegna fréttar sem birtist á mbl.is í morgun og ber yfirskriftina „Hreint og ómengað nautakjöt“. Samtökin segja að í fréttinni komi fram mjög alvarlegar ásakanir á hendur íslenskum kjötiðnaði og verslun.

„Viðmælandinn, Þórarinn Jónsson bóndi, heldur því fram án þess að færa rök fyrir eða nefna dæmi um að víða sé þyngdaraukandi, vatnsbindandi efnum blandað saman við nautakjöt og að það sé opinbert leyndarmál að það sé bætt hrossakjöti, svínafitu, kartöflumjöli og öðru því sem mönnum detti í hug, saman við nautahakk. Samtökum iðnaðarins er ekki kunnugt um íblöndun slíkra hráefna í nautahakk án þess að þess sé getið. Ef um blandað hakk er að ræða þá á að geta þess í merkingum á umbúðum. Viti viðmælandi mbl.is dæmi um annað ætti hann að geta fært rök fyrir því og þá þurfa yfirvöld að taka á því með viðeigandi hætti. Geti hann ekki fært rök fyrir því ætti hann umsvifalaust að draga orð sín til baka,“ segir í athugasemd Samtaka iðnaðarins.

Fyrr í dag sögðu Neytendasamtökin að kanna yrði fullyrðingar bóndans þegar í stað. Um væri að ræða það alvarlegar ásakanir að eðlilegt væri að Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga könnuðu málið. Það væri með öllu óþolandi ef verið væri að svindla á neytendum.

Matvælastofnun benti í samtali við mbl.is á að eftirlit á markaði væri í höndum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga, undir yfirumsjón Matvælastofnunar. Eftirlitssvæðin eru tíu talsins og á heilbrigðiseftirlit m.a. að fylgjast með innihaldi og merkingum matvæla.

Ekki náðist í deildarstjóra matvælaeftirlits Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur þegar eftir því var leitað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert