Pakkinn þyrfti að fara í 3000 kr.

Mikið vantar á að reykingamenn greiði allan kostnað sem samfélagið …
Mikið vantar á að reykingamenn greiði allan kostnað sem samfélagið ber af reykingum. Reuters

Verð á pakka af sígarettum þyrfti að fara upp í 3000 krónur ef að það ætti að vera hægt að ná inn fyrir þeim samfélagslega kostnaði sem er af reykingingum. Sígarettupakkinn kostar í dag um 800 krónur. Þetta kom fram á Tóbaksvarnarþingi Læknafélags Íslands í dag.

Samfélagslegur kostnaður af reykingum er áætlaður um 30 milljarðar króna. Um 180 þúsund einstaklingar eru á fullorðinsaldri. Um 21% þeirra reykja, en það eru um 36 þúsund manns. Ef hver reykingamaður reykir 15 sígarettur á dag má gera ráð fyrir að íslenskir reykingamenn kaupi um 10 milljónir pakka af sígarettum á ári. Ef ganga á út fyrir að reykingamenn greiði allan samfélagslegan kostnað af reykingum þyrfti að hækka verð á sígarettum úr 800 krónur pakkann í 3000 krónur.

Á Tóbaksvarnarþingi kom fram það sjónarmið að eðlilegt væri að þeir sem reyktu sæju sjálfir um að greiða þann kostnað sem væri af fíkn þeirra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert