Tilgangurinn ekki að höndla með krónur

Magnús Árni Skúlason.
Magnús Árni Skúlason.

Magnús Árni Skúlason, sem situr í bankaráði Seðlabankans, sagði í fréttum Ríkisútvarpsins að tilgangur hans með því að reyna að koma íslenskum fyrirtækjum í aflandsviðskipti með gjaldeyri, hafi ekki verið að höndla með krónur.

Magnús Árni sagðist ekki hafa grafið undan krónunni með þessu móti. Haft var eftir honum, að hann íhugi nú málaferli á hendur Morgunblaðinu fyrir meiðyrði.

Fram kom í Morgunblaðinu í dag, að Magnús Árni hafði samband við stóran hluthafa í stoðtækjaframleiðandanum Össuri og starfsmenn lyfjafyrirtækisins Actavis með það fyrir augum að benda þeim á heppilegan viðskiptaaðila (miðlara) með gjaldeyri erlendis. Um var að ræða breska miðlarafyrirtækið Snyder.

Þá kom fram að á fundi fulltrúa Actavis  og Snyder, sem Magnús Árni sat, hafi Snyder boðið upp á miðlun og þá þjónustu að kaupa gjaldeyri erlendis inn á reikning, og afhenda krónur hér á landi, sem eru hefðbundin aflandsviðskipti. Tekjugrundvöllur slíks viðskiptasambands séu gjaldeyrishöftin.  

Magnús Árni sagði við Ríkisútvarpið, að Snyder hafi viljað eiga gjaldeyrisviðskipti við íslenska banka og viðskipti við þau fyrirtæki sem séu á undanþágulista Seðlabankans. Um hafi verið að ræða beina fjárfestingu í fullu samráð við Seðlabanka Íslands. Einnig viðskipti með austurevrópska gjaldmiðla sem íslensku bankarnir versli ekki með.

Fulltrúar stærstu útflutningsfyrirtækja á Íslandi, m.a. Össurar og Actavis, voru boðaðir á sérstakan fund í Seðlabankanum í sumar. Um var að ræða þau fyrirtæki sem njóta sérstakrar undanþágu frá gjaldeyrishöftunum en það eru fyrirtæki sem eru með yfir 80 prósent af tekjum sínum í erlendri mynt. Var þess farið vinsamlega á leit við þessi fyrirtæki að þau létu af aflandsviðskiptum með gjaldeyri, þó þau væru ekki ólögleg, þar sem þau stríddu gegn markmiðum reglnanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert