Einstæð móðir fékk lottóvinninginn

Vinningshafinn í Lottóútdrættinum sl. laugardag er búinn að gefa sig fram. Að þessu sinni var það ung kona, reyndar einstæð móðir með tveggja ára gamalt barn sem datt svona hressilega í lukkupottinn en vinningur fyrir allar tölurnar réttar var rúmlega 35,5 milljónir króna.

Í frétt frá Getspá segir að það hafi verið titrandi og skjálfandi ung kona sem birtist á skrifstofu Getspár til að innheimta vinninginn. Óhætt er að segja að vinningurinn hafi komið á sérlega góðan stað en konan er atvinnulaus og missti íbúð sína nýlega.

Konan keypti vinningsmiðanna í Olís við Gullinbrú á föstudagskvöldinu fyrir útdrátt. Hún hafði séð auglýsingu um þennan risapott og ákvað að kaupa sjálfvalsmiða.

Happtölurnar sem gáfu konunni milljónirnar voru 9 - 22 - 29 - 33 og 39.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert