Viðgerð á Höfða undirbúin

Slökkviliðsmenn á þaki Höfða.
Slökkviliðsmenn á þaki Höfða. mbl.is/Júlíus

Verið er að meta skemmdirnar sem urðu á Höfða í eldsvoðanum í kvöld. Húsið var tryggt fyrir eldsvoða. Listaverkunum úr húsinu hefur verið komið fyrir í geymslu á Kjarvalsstöðum. Þá er þegar byrjað að skipuleggja viðgerð á Höfða, samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 

Tilkynningin fer hér á eftir:

„Giftusamlega tókst að ráða niðurlögum eldsins sem upp kom í Höfða, móttökuhúsi Reykjavíkurborgar, á sjötta tímanum í kvöld.  Brunaviðvörunarkerfi hússins fór í gang og allt tiltækt slökkvilið fór á staðinn. 

Eldurinn kom upp í risi norðvestanmegin í húsinu, og fóru reykkafarar upp á háaloft til þess að hefta útbreiðslu eldsins auk þess sem þakið var rofið til að auðvelda slökkvistarf.  Ljóst er að á tímabili gat brugðið til beggja vona, en fyrir snör handtök slökkviliðs tókst að slökkva eldinn á innan við klukkustund.

Slökkviliðsmönnum, lögreglu og starfsfólki Reykjavíkurborgar tókst að bjarga verðmætum úr húsinu, þ.á.m. ómetanlegum listaverkum og sögulegum heimildum og útlit fyrir að þau séu óskemmd. Listaverkunum hefur verið komið fyrir á Kjarvalsstöðum og hafa þegar verið yfirfarin af forstöðumanni Listasafns Reykjavíkur. 

Erfitt er að segja nákvæmlega til um umfang skemmda á húsinu á þessari stundu.  Hreinsunarstarf er þegar hafið og tryggingasérfræðingar eru að meta stöðuna en húsið var brunatryggt. Einnig  er byrjað að skipuleggja viðgerð á húsinu og aðgerðir til að tryggja að húsið geti sem fyrst gegnt sínu hlutverki á ný. Viðgerð mun þó ekki hefjast fyrr en rannsókn á eldsupptökum er lokið.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, segir að betur hafi tekist til en á horfðist í fyrstu. „Sem betur fer getum við nú sagt að þetta sé dagurinn sem Höfða var bjargað.  Húsið er, eins og allir vita algjörlega ómetanlegt og þess vegna er okkur öllum efst í huga þakklæti til allra þeirra sem tryggðu að svo vel tókst til. Borgaryfirvöld vilja þakka öllum þeim sem að slökkvistarfinu og björgun verðmæta komu, slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, lögreglu og starfsmönnum Reykjavíkurborgar.“

Um þessar mundir eru 100 ár liðin frá því að húsið Höfði var tekið í notkun. Húsið á sér merkilega sögu sem tengist samskiptum Íslendinga við aðrar þjóðir. Það var reist á Félagstúni fyrir franska konsúlinn, Jean Paul Brillouin, hannað í Austur-Noregi og flutt tilsniðið til Íslands. Margir sögufrægir einstaklingar hafa búið í húsinu, en það er hvað þekktast fyrir  leiðtogafund Reagans og Gorbatsjovs sem haldinn var í Höfða í október 1986, en fundurinn er talinn hafa markað upphafið að endalokum kalda stríðsins.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert