25% lækkun höfuðstóls gengislánanna

Íslandsbanki
Íslandsbanki mbl.is/Golli

Íslandsbanki hyggst bjóða viðskiptavinum sínum upp á að breyta gengistryggðum lánum sínum í óverðtryggð lán í krónum miðað við 25 prósenta lækkun höfuðstóls. Þá mun viðskiptavinum bankans, sem eru með hefðbundin verðtryggð lán, standa til boða að breyta lánum sínum í óverðtryggð lán miðað við 10 prósenta lækkun höfuðstóls.

Þetta staðfesti Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, við Morgunblaðið í gær. Birna segir bankann einnig ætla að bjóða upp á þær leiðir sem stjórnvöld hafi unnið að vegna skulda heimilanna.

Ríkisskattstjóri hefur þegar tilkynnt Íslandsbanka að lækkun höfuðstólsins sé ekki skattskyld. Íslandsbanki hafði óskað eftir umsögn frá skattyfirvöldum til þess að fá fullvissu fyrir því að lækkun höfuðstólsins yrði ekki skattlögð. „Við vonum að hægt verði að ráðast í þessar aðgerðir sem allra fyrst. Samhliða þessum útfærslum munum við einnig taka fullan þátt í þeim aðgerðum sem stjórnvöld munu eiga frumkvæði að og verða eflaust kynntar betur á næstunni,“ sagði Birna í samtali við Morgunblaðið í gær.

Aðgerðir stjórnvalda, sem nú eru í undirbúningi, miða öðru fremur að því að létta greiðslubyrði lána þannig að hún verði sambærileg við greiðslubyrði á vormánuðum 2008. Frá þeim tíma hefur gengi krónunnar veikst um 60 prósent og afborganir því þyngst bæði af gengisbundnum og verðtryggðum lánum. Aðgerðirnar eiga að ná jafnt til húsnæðis- og bílalána. Þær verða kynntar á næstu dögum.

Stefnt er að því að úrræðin standi fólki til boða frá 1. nóvember, eða þegar áætlað er að endurreisn bankanna verði endanlega lokið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert