Icelandair eykur tíðni áætlunarflugs um 10%

Icelandair Boeing 757
Icelandair Boeing 757

Icelandair hefur ákveðið að auka áætlunarflug sitt á næsta ári um allt að 10% og gera stórátak í því að fjölga ferðamönnum til landsins. Icelandair flýgur til Íslands frá 26 borgum í Evrópu og Norður-Ameríku og mun á næsta sumri fjölga vikulegum ferðum úr 140 í alls 155 flug á viku eða 23 flug daglega á háannatímanum, að því er fram kemur í tilkynningu.

Sala farseðla samkvæmt þessari nýju og auknu áætlun hófst nú fyrir helgi.

Icelandair bætir einni Boeing 757 farþegaþotu í áætlunarflugflotann og verður með 12 þotur í rekstri næsta sumar.

„Við ætlum einfaldlega að grípa það tækifæri sem við sjáum nú til að auka sölu Íslandsferða með arðbærum hætti. Við teljum að mikil umfjöllun um landið erlendis undanfarið og lágt gengi krónunnar skapi aukna sölumöguleika á ýmsum mörkuðum. Nú er komin á sú reynsla hjá fagaðilum erlendis og almenningi að þjónusta á Íslandi er góð þó samdráttur sé í efnahagslífinu og Ísland er jafn áhugaverður staður og verið hefur - jafnvel ennþá áhugaverðari. Við teljum rétt að nýta með þessum hætti þann styrk og sveigjanleika sem felst í því að reka öflugt markaðsstarf bæði hér heima og á mörkuðum okkar erlendis, og herðum enn róðurinn ytra", segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, í fréttatilkynningu.

Telja að þetta skili 20-25 þúsund nýjum ferðamönnum

Icelandair gerir ráð fyrir því að aukningin í framboði félagsins fjölgi ferðamönnum Icelandair til landsins um 20-25 þúsund og að þeir muni koma með sem svarar sex milljörðum króna í erlendum gjaldeyri til kaupa á vöru og þjónustu.

Þá mun þessi viðbót skapa um 100 bein störf í flugi og flugþjónustu félagsins og auk þess má gera ráð fyrir að yfir þrjú hundruð störf verði til í almennri ferðaþjónustu um landið til að sinna þessum fjölda ferðamanna.  "Við ákvörðun um þessa aukningu horfum við auðvitað fyrst og fremst til arðsemi Icelandair, en það er vissulega gleðilegt að aukin sala erlendis hefur mikil áhrif á ferðaþjónustuna hér á landi. Þetta er gríðarlega atvinnuskapandi grein og mikilvægt að stjórnvöld og raunar allur almenningur styðji við hana", segir Birkir Hólm.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert