Á aðeins við um hluta af vöxtum lánanna

Nýja Kaupþing segir, að niðurstaða áfrýjunarnefndar neytendamála varðandi vaxtaskilmála á myntkörfulánum gamla Kaupþings til húsnæðiskaupa, eigi eingöngu við hluta af vöxtum lánanna, ekki lánin sjálf.

Þá segir bankinn, að umrædd myntkörfulán til húsnæðiskaupa hafi ekki verið veitt frá stofnun Nýja Kaupþings banka. Bankinn muni á næstu dögum fara yfir málið og taka í framhaldinu ákvörðun um hvort dómstólum verði falið að meta niðurstöðu áfrýjunarnefndarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert