Margir vilja vinna hjá Sjálfstæðisflokknum

Valhöll, hús Sjálfstæðisflokksins.
Valhöll, hús Sjálfstæðisflokksins.

Yfir 140 umsóknir bárust um tvö ný störf skrifstofu Sjálfstæðisflokksins. Umsóknarfrestur rann út 5. október og hefur Capacent umsóknirnar nú til meðferðar en reiknað er með að ráðið verði í störfin á næstunni.

Fram kemur á vef Sjálfstæðisflokksins, að auglýst var eftir forstöðumanni og verkefnastjóra á samskiptasviði, sem er nýtt svið á skrifstofu flokksins. Er stofnun þess hluti skipulagsbreytinga í Valhöll, sem eiga að vera komnar að fullu til framkvæmda 1. desember.

 
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert