Óveður hamlar flugi

Óveðrið setur strik í reikning innanlandsflugsins. Þannig er nú flug Flugfélags Íslands frá Reykjavík til Akureyrar, Egilsstaða, ísafjarðar og Vestmannaeyja í athugun.

Athuga á með flug til Akureyrar og Egilsstaða og Ísafjarðar kl. 10.30 og til Vestmannaeyja kl. 12:05. 

Óveður er á Suðurlandi og ekkert ferðaveður t.d. undir Eyjafjöllum og mjög hvasst er einnig  á Mýrdalssandi. Samkvæmt veðurmælum Vegagerðarinnar eru nú austan 27 m/s hjá Steinum undir Eyjafjöllum og vindhviður slá í 38 m/s. 

Á Hellisheiði  er nú um 20 m/s og vindhviður 28 m/s. Á Kjalarnesi eru nú austan 24 m/s og um 36 m/s í hviðum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert