Varað við laskaðri háspennulínu í Borgarfirði

Háspennulína 132 kV (kílóvolt) sem liggur um byggðir Borgarfjarðar er löskuð á móts við bæinn Norðtungu í Þverárhlíð í Borgarfirði.  Leiðarar línunnar liggja yfir veg nr. T522 og geta því valdið vegfarendum skaða ef ekki er gætt vel að. Aftakaveður er á staðnum, samkvæmt upplýsingum frá Landsneti.

Ekki er straumur á línunni. Viðgerðarflokkur frá Landsneti  er á leið á staðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert