Ætlar að hætta í vinnunni eftir lottóvinning

Ungur maður, sem vann tæpar 25 milljónir króna í lottóinu á laugardag ætlar að hætta í vinnunni sem hann stundar nú og einbeita sér að tónlist.

Samkvæmt upplýsingum frá Íslenskri getspá keypti maðurinn 10 raða sjálfvalsmiða með jóker á N1 Gagnvegi síðastliðinn föstudag.  Hann fór ásamt vini sínum og keyptu þeir sér sitthvorn lottómiðann. 

Vinur vinningshafans hringdi í hann á sunnudag þegar upplýst hafði verið hvar vinningsmiðinn var seldur. Vinningshafinn leit þá á textavarpið og sá að hann hafði heldur betur haft heppnina með sér.  Ekki aðeins hafði hann haft allar fimm tölurnar réttar í lottóinu og unnið þar með 24.742.400 krónur heldur var hann einnig með fjórar réttar tölur í jókernum og bættust þar 100 þúsund krónur við.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert