Dapurlegasta dæmið um græðgina

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að lán, sem veitt voru til barna í tengslum við stofnfjárútboð Byrs sparisjóðs sé dapurlegasta dæmið sem komið hafi fram um græðgina í þjóðfélaginu.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, tók undir þetta eftir ríkisstjórnarfund í dag og sagði að þetta væri til marks um þann siðferðisbrest, sem orðið hefði á síðustu árum. 

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon.
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon. mbl.is/Golli
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert