Skuggaverur á sveimi á Akureyri

Lystigarðurinn á Akureyri
Lystigarðurinn á Akureyri mbl.is/Eyþór Árnason

Lögreglunni á Akureyri barst rétt fyrir kl. 01:00 í nótt  tilkynning frá Sjúkrahúsinu á Akureyri um mikinn hávaða sem bærist frá Lystigarðinum. Lögreglumenn fóru á staðinn og heyrðu þegar mikil öskur og angistarvein berast úr skóginum. Skömmu seinna sáu þeir bregða fyrir mannveru í tígrisdýrafeldi og síðan sást annar maður laumast um, ber að ofan, málaður í andlitinu og með sverð í hönd.

Á vef lögreglunnar kemur fram að fleiri skuggar sáust á ferli milli trjánna. „Lögreglumennirnir afréðu að nálgast þessar verur, enda jarðbundnir menn og vantrúaðir á að þarna færu fulltrúar af öðrum heimi. Tígri og málaði maðurinn reyndust enda hinir viðræðubestu og lögðu þegar niður plastvopnin sín þegar þeir urðu lögreglunnar varir," að því er segir á vef lögreglunnar.

Kom á daginn að þarna voru venjulegir framhaldsskólanemar af holdi og blóði. Félagar þeirra tóku nú að gefa sig fram hver af öðrum og voru í hinum ýmsu búningum og með vopn úr frauðplasti og fleiru. Alls voru þetta 10-15 verur sem gáfu þá skýringu að þeir væru að ,,larpa“, þ.e. í hlutverkaleik.

Lögreglan hefði reyndar truflað lokaorrustuna.  Þeir féllust á að geyma hana til betri tíma og viðurkenndu að uppátækið hefði getað komið grandalausum vegfarendum nokkuð í opna skjöldu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert