Jepplingum stolið

Gamann jeppi af Suzuki gerð.
Gamann jeppi af Suzuki gerð.

Undanfarna daga hafa þrír Suzuki jepplingar af eldri gerðinni verið gangsettir á miðborgarsvæðinu (Skúlagötu, Óðinsgötu og Njálsgötu) af óviðkomandi aðila eða aðilum og þeim ekið á brott. Tveir jeppanna hafa fundist aftur en einn hefur enn ekki komið í leitirnar.

Þar er um að ræða Suzuki Sidekick, hvítan að lit, með skráningarnúmerið PL148. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar sú bifreið er niður komin eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfðuborgarsvæðinu í síma 444-1000.

Lögreglan segir, að bílarnir hafi allir verið gangsettar með lyklum. Vegna aldurs þeirra megi ætla að kveikjulásar hafi verið slitnir og því hægt að nota samskonar lykil til verksins. Eigendur slíkra ökutækja eru nú beðnir um að leita sér leiðbeininga og gera viðeigandi ráðstafnir til að minnka líkur á að óviðkomandi geti fært þær úr stað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert