Ljósagangan farin af stað

mbl.is/Kristinn

Ljósaganga er nú hafin, frá Þjóðmenningarhúsinu að sólfarinu við Sæbraut. Þar verður fylgst með þegar tendrað verður á Friðarsúlu Yoko Ono klukkan kortér fyrir átta. Slökkt var á henna rétt í þessu til að vekja á táknrænan hátt athygli á kynbundnu ofbeldi gegn konum.

Dagurinn í dag markar upphaf 16 daga átaks gegn kynbundu ofbeldi undir yfirskriftinni: Leggðu þitt af mörkum Farðu fram á aðgerðir:  Saman getum við bundið enda á ofbeldi gegn konum!

Í dag er jafnframt alþjóðadagur Sameinuðu þjóðanna um afnám ofbeldis gegn konum. Í fararbroddi eru  kyndilberar sem láta sig málefnið varða, m.a. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Halldóra Geirharðsdóttir, leikkona, Jón Páll Eyjólfsson, leikskáld og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann, höfundur bókarinnar Ofbeldi á Íslandi á mannamáli.

Í tilkynningu frá Mannréttindaskrifstofunni segir að kynbundið ofbeldi gegn konum og stúlkum sé útbreiddasta ofbeldi á heimsvísu.

mbl.is/Kristinn
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert