Ætlaði til Reyðarfjarðar en stefndi á Reykjavík

Nodana Teresa er núna á leið til Reyðarfjarðar.
Nodana Teresa er núna á leið til Reyðarfjarðar. mbl.is

Stjórnendur flutningaskips, sem var að koma frá Rotterdam á leið til Íslands, rugluðust á Reykjavík og Reyðarfirði. Eftir afskipti Landhelgisgæslunnar náðist að rétta kúrs skipsins og er það nú á leið til Reyðarfjarðar.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafði snemma morgun samband við flutningaskipið Nordana Teresa sem er 6500 tonn að þyngd og 115 metrar að lengd, á leið frá Rotterdam til Íslands. Í eftirlitskerfi stjórnstöðvar virtist skipið stefna á Þorlákshöfn en samkvæmt tilkynningu sem stjórnstöð hafði borist frá skipinu var skipið á leið til Reyðarfjarðar. Haft var samband við umboðsmann skipsins sem ekki vissi ástæðuna fyrir því að skipið væri á siglingu við Suðvesturland, skipið ætti að koma til Reyðarfjarðar í dag.

Haft var samband við skipið. Kom í ljós að áhöfn skipsins taldi Reykjavík vera Reyðarfjörð. Samstundis var stefnu skipsins breytt og er það nú á réttri leið til hafnar.

Í frétt frá Landhelgisgæslunni segir að þetta atvik sýni nauðsyn fjareftirlits stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar og vakandi eftirfylgni vaktstjóra hennar. Á hverjum sólarhring, yfir vetrarmánuðina eru á annað hundrað skip á siglingu innan íslenska hafsvæðisins en getur farið allt upp í áttahundruð skip yfir sumartímann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert