Litlar breytingar á fylgi flokka

Litlar breytingar hafa orðið á fylgi stjórnmálaflokkanna undanfarinn mánuð, samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup, sem sagt var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Þá er stuðningur við ríkisstjórnina nánast óbreyttur frá því fyrir mánuði. 

Um 32% þátttakenda í könnuninni sögðust myndu kjósa Sjáfstæðisflokkinn væri gengið til kosninga nú. 26% sögðust myndu kjósa  Samfylkinguna, tæplega 23% Vinstrihreyfinguna-grænt framboð og 16% Framsóknarflokkinn. Rúmlega 1% sagðist myndu kjósa Hreyfinguna. 

Þá sögðust 47% styðja ríkisstjórnina. Í maí, skömmu eftir að stjórnin var mynduð, sögðust 60% styðja hana.

Könnunin stóð yfir undanfarinn mánuð. Voru hátt í 6000 manns spurðir og svöruðu 70%. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert