Ágreiningurinn leystur

Icesave
Icesave

Ágreiningur um afgreiðslu Icesave-frumvarpsins innan fjárlaganefndar Alþingis hefur verið leystur. Nefndin fer nú yfir athugasemdir stjórnarandstöðunnar og skilar niðurstöðu áður en atkvæði verða greidd um frumvarpið, líklega i næstu viku. Breska lögmannsstofan Mishchon de Reya mun fara yfir málið.

Annarri umræðu um Icesave-málið var haldið áfram kl. 21:01 í kvöld. Hlé var gert á þingfundi kl. 21:59 og hófst umræðan aftur kl. 22:19.

Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, las þá yfirlýsingu þar sem fram kom að málsmeðferð í fjárlaganefnd muni byggja á tillögum stjórnarandstöðunnar. Að öðru leyti verði leitað samkomulags um þau atriði sem taka þarf ákvörðun um.

Hann sagði að varðandi lögfræðiálit yrði leitað til Mishchon de Reya, en samninganefnd ríkisstjórnarinnar leitaði til hennar á fyrri stigum málsins. Sá fyrirvari er settur að lögmannsstofan samþykki að taka að sér verkefnið, einnig að hún krefjist ekki meira fyrir vinnu sína en sambærilegar stofur eru tilbúnar að vinna verkið fyrir.

„Aðilar eru sammála um þessi atriði og eru þau lögð hér inn í umræðuna í von um og ósk og vissu um að það muni liðka fyrir umræðum hér í þinginu þannig að málið komist til umræðu í fjárlaganefnd og afgreiðslu í framhaldinu,“ sagði Guðbjartur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert