Aðeins karlar sóttu um dómaraembætti

Hús Mannréttindadómstólsins í Strassborg.
Hús Mannréttindadómstólsins í Strassborg. mbl.is/GSH

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita viðbótarfrest til 22. desember vegna umsóknar um að fara á lista sem dómaraefni af Íslands hálfu við Mannréttindadómstól Evrópu. Fresturinn rann út 3. desember en þar sem dómstóllinn leggur áherslu á að á listanum séu dómaraefni af báðum kynjum og eingöngu hafa borist umsóknir frá körlum eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um.

Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg er skipaður einum dómara frá hverju þeirra ríkja sem eru aðilar að mannréttindasáttmála Evrópu og er hver dómari skipaður til sex ára í senn. Kjörtímabil íslensks dómara við dómstólinn rennur út 31. október 2010 dómsmálaráðuneytið vekur þó athygli á því, að taki viðauki nr. 14 við Mannréttindasáttmálann gildi áður en kosning dómara fer fram í apríl 2010 muni kjörtímabil þess dómara er nú situr framlengjast um þrjú ár eða til 2013. Davíð Þór Björgvinsson er dómari við réttinn.

Dómarar við Mannréttindadómstólinn skulu vera menn grandvarir og verða annaðhvort að fullnægja kröfum um hæfi til að gegna æðri dómarastörfum eða vera lögvísir svo orð fari af. Þeir skulu skipa sæti sitt sem einstaklingar og meðan kjörtímabil þeirra varir skulu þeir ekki taka þátt í neinni starfsemi sem sé ósamrýmanleg sjálfstæði þeirra, hlutleysi eða kröfum sem gerðar eru til fulls dómarastarfs. Þá gerir dómstóllinn þá kröfu að dómari hafi gott vald bæði skriflega og munnlega á öðru tveggja opinberra tungumála réttarins, þ.e. ensku eða frönsku, og nokkurn skilning á hinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert