Vilja fréttaritara RÚV í Brussel

Fánar við höfuðstöðvar Evrópusambandsins.
Fánar við höfuðstöðvar Evrópusambandsins. Reuters

Evrópusamtökin lýsa yfir áhyggjum vegna þeirrar ákvörðunar Ríkisútvarpsins að hafa ekki fréttaritara staðsettan í Brussel í komandi aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins, að því er segir í tilkynningu.

„Upplýsingar eru lykilatriði í íslensku samfélagi, sérstaklega á tímum sem þessum. Evrópusamtökin telja það algerlega nauðsynlegt að íslenskum almenningi verði gert kleift að fylgjast með framvindu aðildarviðræðna Íslands og ESB.

Upplýsingar sem skipta máli fyrir þjóðina, mega og eiga ekki að vera „útvalin vara" fyrir fáa aðila.

Evrópusamtökin skora á Ríkisútvarpið að endurskoða þessa ákvörðun sína, þar sem það er rekið samkvæmt hugmyndinni um „útvarp í þágu almennings". Það hefur því mjög mikilvægu hlutverki að gegna í þágu lýðræðis og opinnar umræðu hér á landi. Slíkt hefur ef til vill aldrei verið mikilvægara í íslensku samfélagi en einmitt nú."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert